Svæðisráð fatlaðra á Vestfjörðum
Árið 2010, þann 11. janúar kl. 16:15 kom Svæðisráð fatlaðra á Vestfjörðum saman til fundar á Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar. Mætt voru Helga Björk Jóhannsdóttir formaður, Guðmundur Halldórsson, Margrét Geirsdóttir og Jóna Benediktsdóttir trúnaðarmaður fatlaðra. Íris Sveinsdóttir og Stefán Björgvin Guðmundsson mættu ekki engir varamenn í þeirra stað. Guðbrandur Sverrisson gat ekki mætt og mætti Birna Richardsdóttir varamaður í hans stað, hún var í símasambandi við fundinn ásamt Þuríði Ingimundardóttur.
Fundargerð ritaði Margrét Geirsdóttir.
Þetta var gert:
1. Svæðisáætlun fyrir Vestfirði 2010-2013
Sóley Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum mætti til fundar við svæðisráð til þess að kynna svæðisáætlun fyrir Vestfirði 2010-2013. Jafnframt lagði hún fram ítarefni varðandi umsóknir í framkvæmdasjóð fatlaðra. Á þjónustusvæði I, Ísafjarðarsýslum er m.a. lögð áhersla á að koma til móts við einstaklinga í þörf fyrir búsetuþjónustu og koma á nýju búsetuúrræði, viðhalda öflugu starfi í frekari liðveislu, auka þjónustu skammtímavistunar og finna henni annað húsnæði og efla starfsemi Hvestu með því m.a. að vinna að uppbyggingu starfsemi AMS (atvinnu með stuðningi) ásamt því að samvinnu við endurvinnsluna mun ljúka á þessu ári. Á þjónustusvæði II, Strandasýslu er gert ráð fyrir fjölgun starfsmanna sem nemur einu stöðugildi, aukningu á ráðgjöf til þeirra sem þess óska sem og að geta veitt þeim börnum stuðningsfjölskyldu sem þess óska. Á þjónustusvæði III, austur- og vestur Barðastrandasýslum verður lögð áhersla á að efla einstaklingsmiðaða þjónustu, halda áfram á sömu braut með þjónustusamninga vegna framhaldsskólanáms ungs fólks af svæðinu sem stundar nám á Vesturlandi, vinna að úrræði fyrir einstakling til að bæta lífsgæði sem hæfir aldri hans og getu og koma á fót varanlegu búsetuúrræði fyrir einstakling sem ekki nýtur lengur þjónustu Rjóðursins vegna aldurs.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð fatlaðra eru þrjár. Ein vegna kaupa á húsnæði fyrir skammtímavistun á þjónustusvæði I, Ísafjarðarsýslu og tvær vegna breytinga á aðgengi opinberra bygginga þ.e. fyrir Grunnskólann á Ísafirði og íþróttahúsið á Torfnesi. Umsóknirnar eru alls að upphæð kr. 27.145.000,-. Svæðisráð leggur mjög mikla áherslu á að fundið verði stærra húsnæði undir skammtímavistun, þannig verði biðlista í búsetu eytt. Formanni falið að senda bréf til Framkvæmdasjóðs fatlaðra með bókuninni.
Birna vék af fundi kl. 18:15.
2. Staðan í flutningi málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Sóley Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum gerði grein fyrir stöðu mála vegna flutnings málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Starfshópurinn sem skipaður var af Fjórðungssambandinu mun hittast á fyrsta fundi þann 15. janúar 2010. Starfsfólk Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum, Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar og félagsþjónustu við Djúp ætla að hefja undirbúning með kynningum á þjónustu, starfsgreinum og umfangi þjónustu á svæðinu.
3. Bréf frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga
Lagt fram bréf frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 11. janúar 2010 þar sem óskað er eftir tilnefningu frá Svæðisráði í starfshóp um flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Svæðisráð tilefnir Helgu Björk Jóhannsdóttur formann ráðsins í starfshópinn og Margréti Geirsdóttur til vara.
4. Önnur mál
A. Einu máli vísað til trúnaðarmanns fatlaðra.
B. Lagt fram bréf sem bókað verður sem trúnaðarmál. Trúnaðarmanni og formanni falið að svara bréfinu.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:50
___________________________
Helga Bj. Jóhannsdóttir, formaður
________________________ __________________________
Þuríður Ingimundardóttir (símafundur) Guðmundur Halldórsson
________________________ __________________________
Jóna Benediktsdóttir Margrét Geirsdóttir
__________________________
Birna Richardsdóttir
_____________________________________________________________________________________________________________________
Fundagerð Svæðisráðs 2. febrúar 2009
Árið 2009, þann 2. febrúar kl. 16:00 kom Svæðisráð fatlaðra á Vestfjörðum saman til fundar á Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar. Mætt voru Helga Bj. Jóhannsdóttir formaður, Guðmundur Halldórsson, Jóna Benediktsdóttir trúnaðarmaður fatlaðra og Margrét Geirsdóttir forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar. sem Guðbrandur Sverrisson og Þuríður Ingimundardóttir voru í símasambandi við fundinn. Ekki náðist í Jón B.G. Jónsson, varamann Írisar Sveinsdóttur. Stefán Björgvin Guðmundsson mætti ekki og enginn varamaður fyrir hann.
Fundargerð ritaði Margrét Geirsdóttir.
Þetta var gert:
1. Svæðisáætlun fyrir Vestfirði 2009-2011.
Sóley Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum mætti til fundar við svæðisráð til þess að kynna svæðisáætlun fyrir Vestfirði 2009-2011. Á þjónustusvæði I, Ísafjarðarsýslum er lögð áhersla á að viðhalda stöðugleika í búsetumálum fatlaðra og frekari liðveislu en jafnframt að leita leiða til þess að auka þjónustuna í búsetumálum og kynna öðrum þann árangur sem náðst hefur í frekari liðveislu. Gert er ráð fyrir aukningu sem nemur einu stöðugildi. Búist er við vaxandi þátttöku fatlaðra í Hæfingarstöðinni Hvestu og í Vesturafli. Á þjónustusvæði II, Strandasýslu verður lögð áhersla á að auka þjónustu í frekari liðveislu, gert er ráð fyrir aukningu á þjónustuþörf sem nemur tveimur stöðugildum. Á þjónustusvæði III, Austur- og vestur Barðastrandasýslum, verður unnið að varanlegu búsetuúrræði fyrir einn einstakling. Umsóknir í Framkvæmdasjóð fatlaðra eru sex. Fjórar eru vegna breytinga á aðgengi opinberra bygginga, ein vegna kaupa á einbýlishúsi á Ísafirði og ein vegna kaupa og uppsetningar á heitum potti að Sindragötu 4, Ísafirði. Umsóknirnar eru alls að upphæð kr. 33.785.000,-.
Jafnframt var lögð fram rekstraráætlun fyrir árið 2009 en hún hljóðar upp á
kr. 219.500.000,-
2. Önnur mál:
A: Guðmundur Halldórsson fjallaði um lögræðislögin sem hann telur gölluð. Hann vill meina að brotin séu mannréttindi á fötluðum þegar kemur að undirritun samninga og/eða vinnslu mikilvægra persónulegra málefna s.s leigu eða kaup á húsnæði. Svæðisráð fatlaðra beinir því til Félags- og Dómsmálaráðherra að gerðar verði breytingar á lögræðislögum hið fyrsta. Jafnframt óskar Svæðisráð eftir upplýsingum um hvernig starf nefnda sem fjalla um lögræðislögin gengur.
B: Jóna Benediktsdóttir, trúnaðarmaður fatlaðra, svaraði erindi frá síðasta fundi svæðisráðs vegna skammtímavistunar um jól og áramót. Fram kom í svari Jónu að þar sem foreldrar hefðu ekki óskað eftir meiri þjónustu en gert var ráð fyrir að yrði í boði hefði ekki verið grundvöllur til aðgerða.
Næsti fundur er áætlaður eftir sex til átta vikur.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17.45
___________________________
Helga Bj. Jóhannsdóttir, formaður
________________________ __________________________
Þuríður Ingimundardóttir (símafundur) Guðmundur Halldórsson
________________________ __________________________
Jóna Benediktsdóttir Margrét Geirsdóttir
_______________________________________________________________________________________________________________
Svæðisráð fatlaðra á Vestfjörðum
Fundagerð Svæðisráðs 7. september 2009
Árið 2009, þann 7. september kl. 16:00 kom Svæðisráð fatlaðra á Vestfjörðum saman til fundar á Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar. Mætt voru Helga Bj. Jóhannsdóttir formaður, Guðmundur Halldórsson, Jóna Benediktsdóttir trúnaðarmaður fatlaðra, Íris Sveinsdóttir, Stefán Björgvin Guðmundsson og Margrét Geirsdóttir. Guðbrandur Sverrisson og Þuríður Ingimundardóttir voru í símasambandi við fundinn.
Fundargerð ritaði Margrét Geirsdóttir.
Þetta var gert:
1. Svar við bréfi um réttindamál fatlaðra.
Lagt fram bréf frá Félags- og tryggingamálaráðuneytinu dags. 22. júní 2009. Í bréfinu er vísað í bréf Svæðisráðs málefna fatlaðra á Vestfjörðum dags. 22. maí 2009 en í því var óskað eftir að gerðar yrðu breytingar á lögræðislögunum vegna hagsmuna fatlaðs fólks. Jafnframt var spurt um starf sérstakrar nefndar félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem falið var m.a. að fjalla um lögræðislögin. Meðfylgjandi bréfinu frá ráðuneytinu er skýrsla með tillögum starfshóps á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Niðurstöður skýrslunnar eru í vinnslu hjá ráðuneytinu. Svæðisráð frestar umfjöllun um málið til næsta fundur.
2. Ferð á Reykhóla.
Stefnt er að ferð til Reykhóla miðvikudaginn 23. september 2009.
3. Önnur mál.
A. Rætt um flutning málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga sem mun eiga sér stað árið 2011, að öllu óbreyttu. Svæðisráð fatlaðra óskar eftir því við Fjórðungssambandið að einn fulltrúi frá Svæðisráði starfi með starfshópi þeim sem fjórðungsþingið samþykkti að skipa og stjórn Fjórðungssambandsins var falið að óska eftir tilnefningum sveitarfélaga í.
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:13.
___________________________
Helga Bj. Jóhannsdóttir, formaður
________________________ __________________________
Þuríður Ingimundardóttir Guðmundur Halldórsson
(símafundur)
________________________ __________________________
Jóna Benediktsdóttir Margrét Geirsdóttir
________________________ ___________________________
Guðbrandur Sverrisson Stefán Björgvin Guðmundsson
(Símafundur)
__________________________
Íris Sveinsdóttir
__________________________________________________________________________________________________________________________
|