Reykjavíkurmaraþon Glitnis fer fram á næstu helgi og ætlar Glitnir sem er aðalstyrktaraðili mótsins að brydda upp á því að heita á starfsmenn sína og fer ágóðinn til góðgerðarmála. Starfsmenn Glitnis sem taka þátt í hlaupinu velja sér góðgerðarfélag og fyrir hvern kílómeter sem þeir hlaupa ætlar Glitnir að gefa viðkomandi góðgerðarfélagi 3000 krónur. Magnús Sigurjónsson útibússtjóri Glitnis á Ísafirði og Halldór Margeirsson fyrrverandi útibússtjóri ætla að taka þátt í hlaupinu og mun Styrktarfélag fatlaðra á Vestfjörðum njóta góðs af því. Upphæðin sem safnast fer í sumarleyfisstyrki félagsmanna en í ár hefur þó nokkrum styrkjum verið úthlutað og er hver styrkur að upphæð 25 þúsund krónur.