Á hverju starfssvæði málefna fatlaðra er starfandi svæðisráð sem er sjálfstætt og fjölskipað ráð. Svæðisráð hefur eftirlit með því að á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, svo og sveitarfélaga sé fötluðum veitt sú þjónusta sem samræmist markmiði laga um málefni fatlaðra.
Svæðisráð skipar trúnaðarmann fatlaðra á sínu svæði og fer hann með réttindagæslu fatlaðra. Hlutverk trúnaðarmanns er m.a. að gæta hagsmuna þeirra fötluðu sem búa á sambýlum, vistheimilum fyrir börn og áfangastöðum. Trúnaðarmaður upplýsir svæðisráð reglulega um störf sín og þau mál er honum berast ásamt afgreiðslu þeirra.
F.h. Svæðisráðs málefna fatlaðra á Vestfjörðum
Helga Björk Jóhannsdóttir formaður. |