Forsíða Dökkur bakgrunnur stærsta letur Dökkur bakgrunnur enn stærra letur Dökkur bakgrunnur stærra letur Dökkur bakgrunnur Ljós bakgrunnur stærsta letur Ljós bakgrunnur enn stærra letur Ljós bakgrunnur stærra letur Ljós bakgrunnur

Flýtileiðir
Fréttir
Ritgerðir og greinar
Myndasafn
Skjalasafn
Gestabók
 
Starfsmannavefur

Gestir samtals: 180737

Styrkur vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 27 gr. laga nr.59/1992 um málefni fatlaðra og reglugerðar nr. 550/1994 um styrk vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra.

Heimilt er að veita fötluðum aðstoð vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:
1. Styrk til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
2. Styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.
Svæðisskrifstofur eða sveitarfélög, sbr. 13. gr., annast mat á þörf á aðstoð skv. 1.—2. tölul.
Félagsmálaráðherra setur reglugerð um framkvæmd þessara ákvæða, svo sem skilyrði sem uppfylla þarf til að njóta aðstoðarinnar og viðmiðunarreglur um fjárhæð styrkja.


Samkvæmt reglugerðinni er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

Umsóknir skulu berast á þar til gerðu eyðublaði félagsmálaráðuneytisins ásamt greinargerð. Umsókninni skal skilað til Svæðisskrifstofu og þar er einnig hæg að nálgast umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar.



Til baka

þriðjudagur 7. september 2010
 
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum
Hafnarstræti 1,
400 Ísafirði
Sími: 456-5224
Fax: 456-4462
Netfang:
skrifstofa@svest.is
Opið frá 9-15

Útibú Patreksfirði
Sími: 456-1337
Netfang:
patro@svest.is
Leiðarljós SVEST


S amvinna

V aldefling

E instaklingssýn

S veigjanleiki

T raust

 

 
© Svest • Hafnarstræti 1 • 400 Ísafjörður • Sími 456-5224
 
Vefsmíði: Netheimar
Styrkir