Frekari liðveisla er fjölbreytt og skemmtilegt starf
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra leitar eftir starfsmanni, eldri en 30 ára, í frekari liðveislu.
Starfið felst í aðstoð fólk í sjálfstæðri búsetu við athafnir daglegs lífs, tómstundastarfi og einstaklingsbundnum stuðningi.
Um er að ræða 40% stöðu, kvöld og helgarvinnu.
Við leitum að starfsmanni sem býr yfir:
• Sjálfstæðum vinnubrögðum og getur tekið ábyrgð
• Færni í mannlegum samskiptum, áreiðanleika og frumkvæði
• Jákvæðum viðhorfum og hefur áhuga á að vinna með öðru fólki
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2010
Laun eru samkvæmt kjarasamningum SFR, BHM og Fjármálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar veitir Ria á Svæðisskrifstofu í síma 456 5232 eða 456 5224.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Svæðisskrifstofu, Hafnarstræti 1, Ísafirði og eru einnig aðgengileg á vef Svæðisskrifstofunnar, http://www.svest.is
Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Umsóknarblað má finna hér |