Viltu vinna á áhugaverðum vinnustað!
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum er áhugaverður vinnustaður með fjölbreytta starfsemi og þar eru störf í boði!
Störfin felast í því að veita fólki aðstoð við athafnir daglegs lífs, tómstundastarfi og einstaklingsbundnum stuðningi.
Við leitum að fólki sem hefur:
• áhuga á að vinna með öðru fólki,
• hæfni í mannlegum samskiptum
• jákvæð viðhorf.
Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Laun samkvæmt kjarasamningum SFR, BHM og Fjármálaráðuneytis
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Svæðisskrifstofu Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði
Umsóknarblað má finna hér |