Forsíða Dökkur bakgrunnur stærsta letur Dökkur bakgrunnur enn stærra letur Dökkur bakgrunnur stærra letur Dökkur bakgrunnur Ljós bakgrunnur stærsta letur Ljós bakgrunnur enn stærra letur Ljós bakgrunnur stærra letur Ljós bakgrunnur

Flýtileiðir
Fréttir
Ritgerðir og greinar
Myndasafn
Skjalasafn
Gestabók
 
Starfsmannavefur

Gestir samtals: 180737

Svæðisráð um málefni fatlaðra

Á hverju starfssvæði málefna fatlaðra er starfandi svæðisráð. Svæðisráðið er skipað af fálgsmálaráðherra og sitja sjö manns í ráðinu. Þeir eru fulltrúar hagsmunasamtaka, sveitafélaga og ríkis.
Starfssvið svæðisráðs er meðal annars að hafa eftirlit með því að fötluðum sé veitt sú þjónusta í samræmi við lög.
Svæðisráð gerir tillögur um þjónustu á svæðinu og fjallar um þær tillögur sem gerðar hafa verið og veitir félagsmálaráðuneyti umsögn um þær.
Svæðisráð fjallar um svæðisáætlanir svæðisskrifstofu málefna fatlaðra . Það á að stuðla að samræmingu á þjónustu og koma á framfæri ábendingum ef þurfa þykir.
Svæðisráð veitir svæðisskrifstofu umsögn um hvernig staðið skuli að ráðstöfun fjármagns sem ætlað er til frekari liðveislu.
Svæðisráð á að hafa eftirlit með því að þjónusta og rekstur stofnana fatlaðra sé í samræmi við markmið laga.
Svæðisráð í samvinnu við svæðisskrifstofu beitir sér fyrir því að sveitarfélög á svæðinu taki að sér aukna ábyrgð á málefnum fatlaðra.
Svæðisráð fjallar um ágreining sem kann að koma upp varðandi umsóknir á þjónustu þjónustustofnana.
Svæðisráð annast almennra réttindagæslu sem felst í eftirliti með því að fatlaðir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.
Svæðisráð annast einnig sérstaka réttindagæslu og fjallar þá um kvartanir og ábendingar sem kunna að koma frá trúnaðarmanni eða fötluðum.
Svæðisráð sér um að ráða trúnaðarmann fatlaðra sem hefur það að starfi að annast réttindagæslu fatlaðra á svæðinu.

Til baka

þriðjudagur 7. september 2010
 
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum
Hafnarstræti 1,
400 Ísafirði
Sími: 456-5224
Fax: 456-4462
Netfang:
skrifstofa@svest.is
Opið frá 9-15

Útibú Patreksfirði
Sími: 456-1337
Netfang:
patro@svest.is
Leiðarljós SVEST


S amvinna

V aldefling

E instaklingssýn

S veigjanleiki

T raust

 

 
© Svest • Hafnarstræti 1 • 400 Ísafjörður • Sími 456-5224
 
Vefsmíði: Netheimar
Svæðisráð um málefni fatlaðra