 |
Gestir samtals: 181170
|
 |
|
| Jafnréttisstefna |
| Lögum um ,,jafnan rétt karla og kvenna” er ætlað að auka rétt kvenna á þeim sviðum sem á konur hallar ásamt því að styrkja rétt karla þar sem þeir hafa rýrari rétt. Áherlsa er lögð á að jafnréttismál þurfi að vera viðfangsefni beggja kynja, enda hljóti bæði kynin að njóta góðs af auknu jafnrétti í samfélaginu. Það er því mikilvægt að ekki sé mismunað á grundvelli kynferðis. Mikilvæg leið að jafnrétti kynjanna era ð gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Sérstakt ákvæði er í lögunum þar sem sú skylda er lögð á atvinnurekendur að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera konum og körlum þetta mögulegt. Slíkar ráðstafanir skulu meðal annars miða að því að auka sveigjanleika við skipulagningu á vinnu og vinnutíma þannig að hagsmunir allra séu hafðar að leiðarljósi. Sem dæmi má taka að erfitt er fyrir foreldra ungra barna að vera á fundum á þeim tíma sem sækja þarf börn á leikskóla. Þá geta stjórnendur hvatt foreldra til að skipta veikindadögum barns á milli sín ef þau eru bæði útivinnandi. Svæðisskrifstofan hefur ekki sett sér formlega jafnréttisáætlun en vinnur eftir ofangreindum lögum. |
|
| Til baka |
|
 |
| fimmtudagur 9. september 2010 |
| |
|
| Svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra á Vestfjörðum |
| |
|
|
|
| Leiðarljós SVEST |
S amvinna
V aldefling
E instaklingssýn
S veigjanleiki
T raust |
| |
|
|
|
|