Forsíða Dökkur bakgrunnur stærsta letur Dökkur bakgrunnur enn stærra letur Dökkur bakgrunnur stærra letur Dökkur bakgrunnur Ljós bakgrunnur stærsta letur Ljós bakgrunnur enn stærra letur Ljós bakgrunnur stærra letur Ljós bakgrunnur

Flýtileiðir
Fréttir
Ritgerðir og greinar
Myndasafn
Skjalasafn
Gestabók
 
Starfsmannavefur

Gestir samtals: 181170

Siðareglur Svest

Starfsmaður leitast við í starfi sínu:

  • Að sýna fötluðu fólki virðingu og virkja það til að móta líf sitt.
  • Að veita þjónustu og stuðning af ábyrð og nærgætni með velferð fatlaðs fólks að leiðarljósi
  • Að virða einkalíf fatlaðs fólks og halda þagnarskyldu
  • Að sýna fötluðu fólki kurteisi, virðingu og heiðarleika í viðmóti og umræðu.
  • Að stuðla að lífsskilyrðum og umhverfi sem tekur mið af lífaldri fatlaðs fólks og hvetur til sjálfstæðis.
  • Að mismuna ekki fötluðu fólki t.d. vegna aldurs, fötlunar, kyns, kynþáttar, kynhneigðar, þjóðernis, trúarbragða eða skoðana.
  • Að vera fötluðu fólki jákvæð og góð fyrimynd.
  • Að sýna aðstandendum kurteisi, virðingu og heiðarleika í viðmóti og umræðu.
  • Að stuðla að því með starfi sínu að efla virðingu fyrir fötluðu fólki I samfélaginu.
  • Að veita fötluðu fólki stuðning til að fá vel metin og eftirsóknarverð hlutverk.
  • Að tileinka sér vönduð vinnubrögð og stundvísi.
  • Að þekkja réttindi fatlaðs fólks og vinna samkvæmt gildandi lögum þar um.
  • Að sýna samstarfsfólki kurteisi, virðingu, trúnað og heiðarleika í viðmóti og umræðu og styðja og styrkja hvert annað í starfi.
  • Að mismuna ekki samstarfsfólki t.d. vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldur , fötlunar,þjóðernis, trúarbragða eða skoðana og að leggja ekki hvert annað í einelti.
  • Að leita sér upplýsinga, menntunar/endurmenntunar og fræðslu til að ná árangri í starfi og vera tilbúinn að miðla þekkingu.
  • Að virða þagnarskyldu og sýna vinnuveitanda trúnað. Þagnarskylda helst eftir að störfum er lokið.

Til baka

fimmtudagur 9. september 2010
 
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum
Hafnarstræti 1,
400 Ísafirði
Sími: 456-5224
Fax: 456-4462
Netfang:
skrifstofa@svest.is
Opið frá 9-15

Útibú Patreksfirði
Sími: 456-1337
Netfang:
patro@svest.is
Leiðarljós SVEST


S amvinna

V aldefling

E instaklingssýn

S veigjanleiki

T raust

 

 
© Svest • Hafnarstræti 1 • 400 Ísafjörður • Sími 456-5224
 
Vefsmíði: Netheimar
Siðareglur Svest