Svæðisskrifstofan hefur það að leiðarljósi að gera lífskjör fatlaðra sambærileg við aðra og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífi.
Framtíðarsýn Svæðisskrifstofunnar er að fólk með fötlun sem búsett er á Vestfjörðum, njóti almennra réttinda vegna m.a. búsetu, atvinnu, skólavistar o.fl. sem er við hæfi hvers og eins.
Okkar markmið er að veita einstaklingsmiðaða þjónustu við hæfi hvers og eins, með því aukum við lífsgæði fólks með fötlun á Vestfjörðum. |