Forsíða Dökkur bakgrunnur stærsta letur Dökkur bakgrunnur enn stærra letur Dökkur bakgrunnur stærra letur Dökkur bakgrunnur Ljós bakgrunnur stærsta letur Ljós bakgrunnur enn stærra letur Ljós bakgrunnur stærra letur Ljós bakgrunnur

Flýtileiðir
Fréttir
Ritgerðir og greinar
Myndasafn
Skjalasafn
Gestabók
 
Starfsmannavefur

Gestir samtals: 181170

Orlofsdvöl að Felli í Kollafirði í Strandabyggð

Svæðisskrifstofa Vestfjarða hefur tekið út orlofsdvölina að Felli í Kollafirði í Strandabyggð. Fell er í u.þ.b. 25 kílómetra fjarlægð frá Hólmavík, þar er heilsugæsla og önnur grunnþjónusta. Orlofsdvölin er starfrækt frá 16 júní itl 18 ágúst í ár. Skipuleggjendur og umsjónamenn vilja leggja áheslu að um orlofsdvöl er að ræða en ekki sumardvöl.


Húsið á Felli er tvílyft. Fjögur herbergi á efri hæð, seturými og bað. Á neðri hæð er seturými, tvískipt stofa ( sem stundum er notuð sem svefnaðstaða), herbergi, eldhús, þvottahús og búr. Yfirleitt eru ekki fleiri en tveir saman í herbergi. Aðgengi í húsinu er allt ágætt nema ekki er aðgengi fyrir fólk með skerta hreyfigetu og í hjólastólum. Við húsið er bílskúr sem verið er að standsetja til þess að hægt sé að nota hann til tómstundastarfa. Einnig er hlaða sem hægt er
að nota þegar veður er leiðinlegt. Á Felli er gamalt íbúðarhús sem notað er sem svefnaðstaða fyrir starfsmenn ef þeir eru fleiri en þrír.

Umsjónamenn orlofsdvalarinnar eru Guðmundur Már Björgvinsson, forstöðumaður samýlis í Reykjavík, hann er tómstundafulltrúi, tækniteiknari og er í námi í þroskaþjálfun. Guðmundur hefur 27 ára reynslu í vinnu með fötluðum. Jan Agnar Ingimundarson, hann hefur unnið við málefni fatlaðra í 44 ár. Hann er búfræðingur, garyrkjufræðingur og hefur lært Waldorf uppeldisfræði/þroskauppeldisfræði í R.Steiner seminariet í Svíþjóð. Aðrir starfsmenn hafa reynslu í vinnu með fötluðum, þar eru sérkennari, kannari, stuðningsfulltrúi og ófaglærður.
Starfsmennirnir eru tveir til fjórir í einu, það fer eftir því hvað orlofsgestir eru margir og þurfa mikla þjónustu. Ekki eru hefbundnar vaktir, heldur vinna starfsmenn sólahringsvaktir. Í sumar eru starfsmennirnir einungis karlmenn.
Starfssemin hefur bíl til umráða.

Ekki er sett upp dagskrá fyrir orolfsdvölina en ýmis tilboð eru í gangi en þó ekki öll í einu. Það er til gúmíbátur til sjóferða, hestaleiga í Birtufirði er nýtt. Veitt er á stöng í Fellsá og Þrúðardalsá ásamt fleiru. Heimsóknir á söfn á Hólmavík. Styttri og lengri ferðalög, allt að Eyjum á Ströndum og í Dalina. Orlofsgestum er leift að upplifa orlofsleti, hvíld og skemmtilegheit eftir eigin vilja, ýtt og tekið undir og hlustað á þeirra eigin frumkvæði.
Ekki er settur upp fastur matseðill en reynt að fara eftir óskum hvers og eins orlofsgests. Það er borðað úti eins oft og veður leifir, því eldhúsið er það lítið að ekki er mögulegt fyrir orlofsgesti að sitja þar til borðs allir í einu.
Orlofsdvölin er ætluð fólki með einhverfu og aðrar fatlanir. Þessi orlofsdvöl gæti hentað fólki sem er ekki með skerta hreyfigetu vegna aðstæðna í húsinu og fólki sem vill ekki mikla dagskrá en er frekar að leita eftir rólegheitum og hvíld og getur sagt hvað það vill og haft skoðun á því.


Til baka

fimmtudagur 9. september 2010
 
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum
Hafnarstræti 1,
400 Ísafirði
Sími: 456-5224
Fax: 456-4462
Netfang:
skrifstofa@svest.is
Opið frá 9-15

Útibú Patreksfirði
Sími: 456-1337
Netfang:
patro@svest.is
Leiðarljós SVEST


S amvinna

V aldefling

E instaklingssýn

S veigjanleiki

T raust

 

 
© Svest • Hafnarstræti 1 • 400 Ísafjörður • Sími 456-5224
 
Vefsmíði: Netheimar
Efni