Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum leitar eftir yfirþroskaþjálfa eða deildarstjóra til starfa í þjónustuíbúðum á Ísafirði.
Um er að ræða 80% -100% starf sem er að stærstum hluta vaktavinna. Æskilegt að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
Ábyrgðarsvið og verkefni:
• Umsjón með faglegu starfi.
• Staðgengill og aðstoðarmaður forstöðumanns.
• Ber ábyrgð á innra skipulagi þjónustuíbúða í samráði við forstöðumann.
Menntun og hæfniskröfur:
• Þroskaþjálfamenntun.
• Reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi.
• Jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar.
• Frumkvæði og metnaður.
Í boði er fjölbreytt stjórnunarstarf í góðu starfsumhverfi. Einnig er boðið upp á stuðning og fræðslu í tengslum við starfið.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2010.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri og Sigfríður Hallgrímsdóttir sviðsstjóri í síma 456 5224.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum fjármálaráðuneytis og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Svæðisskrifstofu, Hafnarstræti 1, Ísafirði og eru einnig aðgengileg á vef Svæðisskrifstofunnar, www.svest.is
|