Undirritaðir þátttakendur á norrænni ráðstefnu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í Stokkhólmi vilja koma á framfæri mikilvægi neðangreindra greina samningsins fyrir fólk með þroskahömlun.
Við skorum á stjórnvöld og opinberar stofnanir hvers lands að:
· Framfylgja ákvæði 8. greinar hans um vitundarvakningu þannig að fleiri þekki til og beri virðingu fyrir fólki með fötlun.
· Framfylgja ákvæði 12. greinar um réttarstöðu til jafns við aðra með því að tryggja að fólk með þroskahömlun fá viðeigandi stuðning við að nýta gerhæfi sitt.
· Framfylgi 19. grein samningsins um að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar með því að tryggja fólki með þroskahömlun möguleika á að velja hvernig, hvar og með hverjum þeir búa til jafns við aðra.
· Framfylgi 24. grein um menntun með því að tryggja fólki með þroskahömlun fullan aðgang að síbreytilegri menntun á öllum skólastigum, þ.m.t fullorðinsfræðslu.
Við krefjumst þess að þið beitið ykkur fyrir því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks komist að fullu í framkvæmd á öllum Norðurlöndunum.
Við minnum einnig á allar aðgerðir séu unnar í fullu samráði við fólk með þroskahömlun og hagsmunasamtök þeirra. ( Grein 4.3 ).
Minnt er á kjörorð fatlaðs fólks; Ekkert um okkur án okkar
Stokkhólmi, 20. mars 2010
Hagsmunasamtök fólks með þroskahömlun á Norðurlöndunum;
FUB og Klippan í Svíþjóð, Kehitysvammaisten Tukiliitto ry og Me ltse ry í Finnlandi, Lev og Ulf í Danmörku, Landssamtökin Þroskahjálp og Átak á Íslandi, NFU í Noregi, FDUV og Steg för steg í Álandseyjum og Finnlandi, Javni í Færeyjum.
Gerður A. Árnadóttir formaður Friðrik Sigurðsson framkvæmdastjóri fulltrúar Landssamtakanna Þroskahjálpar (Íslands) á ráðstefnunni.