Forsíða Dökkur bakgrunnur stærsta letur Dökkur bakgrunnur enn stærra letur Dökkur bakgrunnur stærra letur Dökkur bakgrunnur Ljós bakgrunnur stærsta letur Ljós bakgrunnur enn stærra letur Ljós bakgrunnur stærra letur Ljós bakgrunnur

Flýtileiðir
Fréttir
Ritgerðir og greinar
Myndasafn
Skjalasafn
Gestabók
 
Starfsmannavefur

Gestir samtals: 181170
[ 28.7.2010 ]

Nýr forstöðumaður í búsetu

Hallgrímur Gunnþórsson hefur verið ráðinn í afleysingu fyrir forstöðumann í búsetu frá og með 15 .ágúst n.k.



Hallgrímur er með BA gráðu í félagsráðgjöf ásamt MS gráðu í mannauðstjórnun og reynslu í vinnu með fötluðum.

Hann er kvæntur og á tvö börn, hann er Vestfirðingur bjó í Bolungarvík og á Ísafirði á sínum yngri árum.



Svest býður hann velkomin til starfa

     


[ 31.3.2010 ]

Fötlun í listum, menningu og fjölmiðlum

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands



Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að velta fyrir sér birtingarmyndum fötlunar í menningu og listum, og umfjöllun um fötlun í fjölmiðlum.



Birtingarmyndir fötlunar er mikilvæg heimild um viðhorf samfélaga til fatlaðs fólks. Innan fræðanna hefur lítil áhersla verið lögð á að skoða samspil fötlunar, menningar og lista ef frá eru taldar þær fræðigreinar er snúa að notkun listgreina í kennslu, þjálfun og endurhæfingu. Sú áhersla er oft í samræmi við hefðbundinn skilning á fötlun sem galla sem þarf að bregðast við að lækna og laga. Með tilkomu fötlunarfræða og nýjum skilningi á fötlun sem leggur áherslu á félagslega þætti hefur áhugi aukist á birtingarmyndum fötlunar í menningu, listum og fjölmiðlaumfjöllun um fatlað fólk.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á menningarbundnum hugmyndum um fötlun. Á námskeiðinu verður rýnt í stöðu og ímynd fatlaðs fólks og birtingarmyndir fötlunar í menningu vestrænna samfélaga. Fjallað verður um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks m.a. í listum, dægurmenningu, fjölmiðlum og bókmenntum. Umfjöllun námskeiðsins verður sett í samhengi við stöðu fatlaðs fólks í menningu samtímans.


Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.

Kennarar:Hanna Björg Sigurjónsdóttir, lektor og Kristín Björnsdóttir, aðjúnkt í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands

Tími: Mán. 12. apr. og fim. 15. apr. kl. 16 - 19, lau. 17. apr. kl. 9 - 12, mán. 26. apr.

og fim. 29. apr. kl. 16 - 19 (5x)

Verð: 29.900 kr.

Staður: Endurmenntun, Dunhaga 7


Athugið við skráningu!

Skipuleggjendur námskeiðsins leggja áherslu á að það sé aðgengilegt fyrir alla og lagað að þörfum þátttakenda. Því biðjum við þig um að taka fram, í athugasemdareit við rafræna skráningu eða við skráningu í síma, ef eitthvað af neðangreindu á við um þig:

Þarf táknmálstúlk

Þarf námsgögn á stækkuðu letri eða blindraletri

Þarf námsgögn á auðlesnum texta

Þarf rittúlk

Kem með aðstoðarmann

Nota hjólastól

... eða annað sem skiptir máli að skipuleggjendur viti af.



     


[ 31.3.2010 ]

Sameiginleg ályktun norrænu samtakanna um málefni fólks með þroskahömlun

Undirritaðir þátttakendur á norrænni ráðstefnu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í Stokkhólmi vilja koma á framfæri mikilvægi neðangreindra greina samningsins fyrir fólk með þroskahömlun.



Við skorum á stjórnvöld og opinberar stofnanir hvers lands að:



· Framfylgja ákvæði 8. greinar hans um vitundarvakningu þannig að fleiri þekki til og beri virðingu fyrir fólki með fötlun.

· Framfylgja ákvæði 12. greinar um réttarstöðu til jafns við aðra með því að tryggja að fólk með þroskahömlun fá viðeigandi stuðning við að nýta gerhæfi sitt.

· Framfylgi 19. grein samningsins um að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar með því að tryggja fólki með þroskahömlun möguleika á að velja hvernig, hvar og með hverjum þeir búa til jafns við aðra.

· Framfylgi 24. grein um menntun með því að tryggja fólki með þroskahömlun fullan aðgang að síbreytilegri menntun á öllum skólastigum, þ.m.t fullorðinsfræðslu.

Við krefjumst þess að þið beitið ykkur fyrir því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks komist að fullu í framkvæmd á öllum Norðurlöndunum.

Við minnum einnig á allar aðgerðir séu unnar í fullu samráði við fólk með þroskahömlun og hagsmunasamtök þeirra. ( Grein 4.3 ).

Minnt er á kjörorð fatlaðs fólks; Ekkert um okkur án okkar

Stokkhólmi, 20. mars 2010

Hagsmunasamtök fólks með þroskahömlun á Norðurlöndunum;

FUB og Klippan í Svíþjóð, Kehitysvammaisten Tukiliitto ry og Me ltse ry í Finnlandi, Lev og Ulf í Danmörku, Landssamtökin Þroskahjálp og Átak á Íslandi, NFU í Noregi, FDUV og Steg för steg í Álandseyjum og Finnlandi, Javni í Færeyjum.

Gerður A. Árnadóttir formaður Friðrik Sigurðsson framkvæmdastjóri fulltrúar Landssamtakanna Þroskahjálpar (Íslands) á ráðstefnunni.

     


1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69 70 71 72 73 74 næsta síða »


fimmtudagur 9. september 2010
 
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vestfjörðum
Hafnarstræti 1,
400 Ísafirði
Sími: 456-5224
Fax: 456-4462
Netfang:
skrifstofa@svest.is
Opið frá 9-15

Útibú Patreksfirði
Sími: 456-1337
Netfang:
patro@svest.is
Leiðarljós SVEST


S amvinna

V aldefling

E instaklingssýn

S veigjanleiki

T raust

 

 
© Svest • Hafnarstræti 1 • 400 Ísafjörður • Sími 456-5224
 
Vefsmíði: Netheimar
Fréttir